Framleiðandi: Comfort System, Svíþjóð
Beykiviður í göflum og hliðargrindum sem eru fellanlegar beint niður. Eftirgefanlegur rúmbotn úr viðarfjölum, góð þrýstingssáravörn. Höfða-og fótalag færast í sundur þegar hækkað er undir höfði, minnkar þrýsting á sethluta. Hægt að hækka undir læri og kálfa samtímis með fjarstýringu (hentar mjög vel fyrir einstaklinga með fótabjúg). Mikið úrval aukahluta.
- Lyftigeta 220kg
- Hámarksþyngd notanda 185kg
- Utanmál: 214 x 132cm
- Dýnumál: 200 x 120cm
- Lyftihæð: 34-82cm
- Frí hæð frá gólfi: 16cm
- 100mm hjól, samlæst fótstigin bremsa
- Hægt að lengja rúmbotn í 210cm og 220cm, ath.
þá þarf að skipta út hliðargrindum- sjá aukahluti
ISO 18 12 10: Stillanleg sjúkrarúm með gálga