Göngugrind fyrir börn og unglinga með góðum stuðning við bol
Hentar fyrir breiðan hóp notenda allt frá þeim sem þurfa mikinn
stuðning við bol og mjaðmagrind til þeirra sem geta tekið fullan þunga á fætur
og þurfa minni stuðning.
Hægt að nota bæði framlæga eða baklæga.
Framlæg hentar grindin vel fyrir börn sem
eru að byrja að læra að ganga, geta ekki tekið fullan þunga á fætur og þurfa
stuðning við bol og mjaðmagrind.
Baklæg hentar grindin fyrir börn sem
hafa öðlast betri göngufærni, hafa meiri stöðugleika í bol og geta tekið fullan
þunga á fætur.
Hægt er að halla grindinni fram á við um allt að 30° til að auðvelda gang og
örva barnið til að taka skref.
Með grindinni fylgja bolstuðningur og setsegl.
Gott úrval aukahluta veitir möguleika á að útfæra grindina út frá þörfum
notandans – sjá pöntunareyðublað og aukahlutalista.
Hámarks þyngd notanda:
stærð 1: 30 kg
stærð 2: 40 kg
stærð 3: 60 kg
stærð 4: 80 kg