Thera-trainer
Tigo 632 handa- og fótahjól með stuðningsmótor og 7" lita-snertiskjá. Mótor
í fótahjóli er 240 Wött, mótor í handahjóli er 100 Wött. Stillanleg spasmavörn
sem hægt er að slökkva á. Raddstýrður öryggisrofi til að slökkva á tæki ef
eitthvað kemur upp, næmi er stillanlegt.
Skjárinn
er með þægilegu, íslensku viðmóti. Hjólið býður upp á nokkur þjálfunarprógröm
t.d. almenna þolþjálfun og hjartaþjálfun (Wött). Hægt að stilla inn tímalengd
þjálfunar.
Grunneiningin
er stillanleg að lengd og er með hjólum til að auðvelda flutning. Fætur eru
festir í pedala með frönskum rennilás. Snúningsradius pedalanna er hægt að
stilla á tvo vegu. Aukahlutir eru t.d. smellufestingar fyrir fætur (í pedala),
stillanlegur kálfastuðningur, veltivörn fyrir stól/hjólastól.
Handahjól
er með kræklóttum handföngum sem bjóða upp á marga möguleika varðandi grip.
Einnig fylgja með öryggishandföng til að nota þegar fótahjólið er eingöngu í
notkun. Handahjólið er auðvelt að stilla, bæði hæð og fjarlægð frá einstaklingi.
Griphanskar fyrir einstaklinga með slakt grip eru fáanlegir.
Hjólið
hentar mjög vel til þjálfunar með Motiview sýndarveruleikanum.