Sensa Flex A3 meðferðarstóll sem hentar mjög vel til blóðtöku, lyfjagjafa
ofl.
Þessi stóll er í fastri sethæð, 57 cm en með rafknúinni stillingu á baki
(0°-81°), sethluta 7°- 20°og fótahluta -77°°-20°. Í Trendelenburg stöðu 20°.
Lengd 198,7 cm (í útafliggjandi stöðu), heildarbreidd 84,4 cm. Armar eru með
lágum fleyg, þeim er hægt að lyfta upp, snúa frá og halla. Mótaðir armpúðar
og hærri fleygar fáanlegir sem aukahlutir. Einnig hægt að panta meira
stillanlega arma. Áklæði er tveggja laga svampur, 7 cm þykkt, mjúkt. Hnakkapúði
í sama lit og áklæði. Er á 7,5 cm hjólum sem læsist hvert og eitt. Burðargeta
200 kg.
Aukahlutir s.s. IV-stöng, samlæst 10 cm hjól, pappírsrúlluhaldari,
keyrsluhandfang, mjóbakspúði, glært hlífðarplast á fótenda og arma. Val um 7
liti á áklæðí án aukagreiðslu og 9 til viðbótar gegn aukagreiðslu.
Er einnig fáanlegur með rafknúinni hæðarstillingu (Sensa Flex A4).